Svar frá Gro Harlem Brundtland til Benedikts Jónssonar, sendiherra Íslands í Genf, varðandi beiðni Auðar.

November 11, 1999

Kæri sendiherra,

Ég vísa til samskipta okkar um mænuskaða og síðast til bréfs yðar dags. 8. október 1999.

Fyrst og fremst vil ég biðjast velvirðingar á öllum misskilningi sem kann að hafa átt sér stað. Stofnunin hefur sannarlega mikinn áhuga á að vinna með yður að stofnun miðstöðvar á Íslandi um málefni mænuskaða. Fyrsta skrefið sem lagt er til, að safna saman alþjóðlegum upplýsingum um mænuskaða, þar á meðal um tíðni, afleiðingar og áhrif á heilbrigðiskerfið, er einnig í fullu samræmi við áætlanir okkar.

Einnig munum við með ánægju vinna með miðstöðinni að skipulagningu alþjóðlegs fundar, í framhaldi af öflun þessara gagna á heimsvísu.


Read the response: 


Share