5000 undirskriftir afhentar framkvæmdastjóra WHO

January 27, 2012

Íslenskt frumkvæði lofað

Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands (ISCI), hitti Zsuzsanna Jakab, svæðisstjóra WHO fyrir Evrópu, og afhenti henni 5000 undirskriftir frá íbúum Norðurlandanna. Með undirskriftunum er WHO skorað á að leggja allt kapp á að tryggja alþjóðlegt samstarf í leitinni að lækningu á mænuskaða.

Síðastliðinn desember, á meðan á sjónvarpsherferðinni „Lamaða brúðan“ stóð, var auglýsingin sýnd samtímis í sjónvarpi á Íslandi, Danmörku, Svíþjóð, Færeyjum, Finnlandi og Noregi í þrjár vikur. Á þeim tíma söfnuðust um 5000 undirskriftir í norrænni áskorun sem kallaði eftir því að WHO hófi alþjóðleg átök á sviði mænuskaðarannsókna.

Zsuzsanna Jakab hrósaði íslenska frumkvæðinu og fullvissaði Auði Guðjónsdóttur um að allar tillögur yrðu vandlega skoðaðar.

Mænuskaðastofnun Íslands (ISCI) heldur úti alþjóðlegum gagnagrunni um nýjungar í meðferð mænuskaða. Gagnagrunnurinn er netmiðaður og aðgengilegur á ensku, spænsku, arabísku, rússnesku og kínversku.

Myndin var tekin í höfuðstöðvum WHO Regional Office for Europe í Kaupmannahöfn og sýnir Zsuzsanna Jakab (svæðisstjóra WHO) til vinstri og Auði Guðjónsdóttur (stjórnarformann ISCI).

Nýlegar færslur

August 6, 2025
Auður Guðjónsdóttir hefur í yfir þrjá áratugi barist fyrir rannsóknum á mænuskaða eftir að Hrafnhildur dóttir hennar lamaðist í alvarlegu bílslysi. Við heyrum sögu Auðar og Hrafnhildar heitinnar í þættinum í dag.
October 29, 2024
Í dag ávarpaði Auður Guðjónsdóttir heilbrigðisnefnd Norðurlandaráðs, en Norðulandaráðsþingið er haldið hér á landi í ár dagana 28.október til 31. október. Auður Guðjónsdóttir fyrir heilbrigðisnefnd Norðurlandaráðs  RæðanFrétt MBL.isFrétt DV.is
August 6, 2024
Undanfarið hefur ný auglýsing Mænuskaðastofnunar Íslands „ Ákallið til veraldarinnar um að lækna þá lömuðu“ verið sýnd á RUV og á samfélagsmiðlum og á Íslandi einu hefur verið horft á hana yfir milljón sinnum á samfélagsmiðlunum. Ég vil þakka Íslendingum fyrir að hafa styrkt gerð þessarar fallegu auglýsingar og fyrir alla þá hjálp sem þeir hafa veitt mér og Mænuskaðastofnun í gegnum árin. Þó að ég leiði mænuskaðaverkefnið lít ég svo á að það sé verkefni allra Íslendinga því tugir þúsunda þeirra, ef ekki fleiri, hafa lagt hönd á plóg á margvíslegan hátt.
January 5, 2024
Bréf nr. 3 frá Amina J. Mohammed
December 20, 2023
Mænuskaði (SCI) er lífsbreytandi atburður sem getur stafað af sjúkdómi eða áverka (1). Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) eru helstu orsakir mænuskaða bílslys, fallslys og ofbeldi, þar á meðal sjálfsvígstilraunir (2). Mænan gegnir mikilvægu hlutverki í því að bera boð milli heila og líkamans, sem gerir fólki kleift að hreyfa sig og finna skynjun. Áverkar á hrygg geta skaðað mænu, sem veldur því að þessi samskipti milli heila og líkamans rofna. Þegar mænuskaði á sér stað, verða hreyfing og skynjun fyrir truflunum, sem getur leitt til virknitaps, lömunar og skynjataps. Auk þess að missa hreyfigetu geta einstaklingar með mænuskaða upplifað verki, breytingar á kynlífsstarfsemi, skert þvag- og hægðastjórnun og óstjórnlegan vöðvaspama, ásamt öðrum líkamlegum og andlegum einkennum (3). Mænuskaði er flokkaður sem alger eða ófullkominn skaði. Meira en helmingur þeirra sem fá mænuskaða verða fyrir algerum skaða, sem veldur algjöru tapi á hreyfi- og skynstarfsemi fyrir neðan skaðann. Hins vegar hafa sumir einstaklingar ófullkominn skaða, sem þýðir að þeir halda hluta af starfsemi sinni og geta náð einhverjum bata. 
October 10, 2023
Styrkur til Háskóla Íslands. Rektor Háskóla Íslands, Dr. Jón Atli Benediktsson, prófessor Thor Aspelund og Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands (ISCI). Heiti verkefnis: Mænuskaði og gervigreind. Mænuskaðastofnun Íslands styrkir Háskóla Íslands.
October 2, 2023
Auður Guðjónsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur og stjórnarformaður Mænuskaðastofnunar Íslands, hitti Amina J. Mohammed, aðstoðarframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, á Íslandi og vakti athygli hennar á innihaldi meðfylgjandi bréfs.
August 19, 2022
Yðar Excellence, Aðalmarkmið þessa bréfs er að biðja yður, valdamesta einstaklinginn í heiminum á sviði heilbrigðismála, um að lýsa því opinberlega yfir að finna verði lækningu við lömun. Jafnframt vil ég hvetja fjármálalega sterka aðila, sérfræðinga í gervigreind, vísindamenn og lækna til að sameina krafta sína og deila þeirri vísindalegu þekkingu á taugakerfinu sem þegar er til staðar. 
May 10, 2022
14.1 G. Drög að þverfaglegri alþjóðlegri aðgerðaáætlun um flogaveiki og aðra taugasjúkdóma til stuðnings almennri heilbrigðisþjónustu (skjal A75/10 Add.4).
May 3, 2022
Kæra frú forseti, Ég vil þakka Dr. Tedros fyrir einlæga ræðu hans í gær, fyrir sanna forystu á erfiðum tímum og fyrir að velta því fyrir sér að því miður stöndum við reglulega frammi fyrir ógnunum og afleiðingum stríðs. Samt vitum við og trúum því að friður sé forsenda velferðar.
Sjá meira