Bréf til Kristrúnar Frostadóttur, Forsætisráðherra
Ágæti forsætisráðherra
Mig langar að koma eftirfarandi ábendingu á framfæri við þig og vona að þú sjáir þér fært að taka hana til skoðunar.
Þegar Jón Baldvin Hannibalsson var utanríkisráðherra heyrði ég hann segja, í samhengi við erfið samskipti við erlenda ráðamenn, að afar gott gæti verið að enda á mannúðarmáli sem hægt væri að sameinast um.
Heyrði í Kastljósi að þú munir eiga samtal við Donald Trump Bandaríkjaforseta í þessum mánuði. Ég reikna með að erfið mál beri á góma. Þess vegna datt mér í hug hvor hugsanlega mætti beita þeirri aðferð sem Jón Baldvin lýsti og nefna við forsetann mál sem Bandaríkin og Ísland gætu sameinast um á grundvelli mannúðar og vísinda.
Tillaga mín er sú að Ísland og Bandaríkin beiti sér sameiginlega fyrir því innan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) að komið verði á fót starfshópi gervigreindarfræðinga og lífvísindafólks. Hlutverk starfshópsins væri að safna saman þeirrigrunnvísindaþekkingu sem þegar liggur fyrir á alþjóðlegu sviði taugavísinda og nýta gervigreind til að greina og samkeyra gögnin.
Markmiðið er að nýta gervigreindina til að finna mikilvægar tengingar, mynstur og nýja þekkingu í þeim miklu gagnasöfnum sem þegar hafa orðið til. Slíkt gæti stuðlað að auknum skilningi á taugakerfinu og hraðað þróun árangursríkari meðferða og jafnvel lækninga átaugasjúkdómum og mænuskaða/ lömun.
Trump forseti hefur lagt mikla áherslu á að Bandaríkin verði leiðandi stórveldi á sviði gervigreindar. Það gæti því verið áhugavert fyrir hann og Bandaríkin að eiga stóran þátt í þvíað WHO ýti úr vör slíku mannúðar- og vísindaverkefni sem gagnast gæti milljörðum manna um víða veröld um alla framtíð. Samkvæmt tölum frá WHO líða um þrír milljarðar manna vegna skaða og sjúkdóma í taugakerfinu.
Þótt Bandaríkin hafi ákveðið að segja sig úr WHO gætu þau, að mínu mati, engu að síður tekið þátt í slíku afmörkuðu alþjóðlegu vísindasamstarfi á vegum WHO.
Árið 2022 kom Ísland öllu taugakerfinu inn í áratugar átak WHO í þágu taugakerfisins. Í því sambandi studdi sendiráð Bandaríkjanna í Genf Ísland.
Dæmi um skaða og sjúkdóma í taugakerfinu: Mænuskaði/lömun, Geðsjúkdómar, Alzheimer, Flogaveiki, Parkinson, MS, MND og ýmsar tegundir af taugaþroskaröskun.
Ágæti forsætisráðherra
Með bestu kveðjum og gangi þér vel að tala við forsetann. Ég vona að þú sjáir hag í því að koma umræddu máli á framfæri við hann.
Auður Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Ekkert svar hefur borist við bréfi þessu
Bréf frá:

Auður Guðjónsdóttir,
Registered Nurse, Founder & Chair of ISCI





